Hoppa yfir valmynd
12. apríl 2011 Matvælaráðuneytið

Málstofa um mótun peningastefnu

Í dag þriðjudag, 12. apríl, boðar efnahags- og viðskiptaráðuneytið til málstofu um mótun framtíðarstefnu í peningamálum. Málstofan hefst kl. 15:00 í sal HT-102 í Háskóla Íslands (á Háskólatorgi). Frummælendur verða Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, Friðrik Már Baldursson prófessor og Yngvi Örn Kristinsson hagfræðingur.
Gert er ráð fyrir að málstofan standi í tvær klukkustundir. Málstofan er haldin í samvinnu við Seðlabanka Íslands og Háskóla Íslands.
Málstofan er öllum opin.

Dagskrá:

  • 15:00   Þórólfur Matthíasson prófessor, forseti Hagfræðideildar, setur málstofuna.
  • 15:05   Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur S.Í.: Peningastefna eftir höft.
  • 15:30   Friðrik Már Baldursson prófessor: Valkostir í peningamálum.
  • 15:45   Yngvi Örn Kristinsson hagfræðingur: Þjóðhagsvarúð, er það lausnarorðið?
  • 16:00   Almennar umræður.

Fundarstjóri:

Björn Rúnar Guðmundsson, skrifstofustjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneyti.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta