Niðurstöður um úthlutun á óúthlutaðan tollkvóta vegna innflutnings á blómum
Fimmtudaginn 7. apríl sl. rann út tilboðsfrestur í óúthlutaðan tollkvóta á blómum sem ekki hafði gengið út vegna fyrri hluta ársins 2011.
Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum, (0602.9091) samtals 3.000 stk. á meðalverðinu 80 kr./stk. Hæsta boð var 110 kr./stk. en lægsta boð var 50 kr./stk. Til úthlutunar voru 1.500 stk. og var úthlutað til eins aðila á meðalverðinu 110 kr./stk.
Ekkert tilboð barst um innflutning á öðrum pottaplöntum, (0602.9093) samtals 2.000 stk.
Ein umsókn barst um innflutning á afskornum blómum, samtals 50.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 81.250 stk. Úthlutað var án útboðs.
Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:
Blómstrandi pottaplöntur janúar – júní 2011
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
1.500 | Húsasmiðjan/Blómaval ehf. |
Afskorin blóm janúar – júní 2011
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
50.000 | Samasem ehf. |
Reykjavík, 11. apríl 2011
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið