Hoppa yfir valmynd
13. apríl 2011 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Drög að reglugerð um bókhald fjarskiptafyrirtækja til umsagnar

Drög að endurskoðaðri reglugerð um bókhald og kostnaðargreiningu í rekstri fjarskiptafyrirtækja liggja nú fyrir. Unnt er að senda ráðuneytinu umsögn um reglugerðardrögin til og með 2. maí nk. á netfangið [email protected].

Drög að endurskoðaðri reglugerð um bókhald og kostnaðargreiningu í rekstri fjarskiptafyrirtækja liggja nú fyrir. Unnt er að senda ráðuneytinu umsögn um reglugerðardrögin til og með 2. maí nk. á netfangið [email protected].

Drögin fela í sér sambærilegt efnislegt gildissvið og núgildandi reglugerð nr. 960/2001, sem sett er með stoð í eldri fjarskiptalögum. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að einföldun og aukinni skilvirkni við vinnslu kostnaðargreininga og styrkja stoðir matskenndra viðmiðana sem Póst – og fjarskiptastofnunar beitir meðal annars við töku ákvarðana. Einnig felur reglugerðin í sér ítarleg ákvæði um ávöxtunarkröfu auk útfærslu á LRIC kostnaðarmódelinu.

Reglugerðardrögin eiga stoð í 5. mgr. 32. gr. og 75. gr. laga um fjarskipti, nr. 81/2003. Lagt er til að samhliða falli úr gildi reglugerð um bókhaldslega og fjárhagslega aðgreiningu í rekstri fjarskiptafyrirtækja nr. 960/2001.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta