Hoppa yfir valmynd
15. apríl 2011 Matvælaráðuneytið

Menningarsamningum er ætlað að efla menningu og menningartengda ferðaþjónustu

Undirritun menningarsaamninga
Undirritun menningarsaamninga

Ráðherraranir Katrín Júlíusdóttir og Katrín Jakobsdóttir undirrituðu í dag 7 menningarsamninga, þ.e. samninga um menningarmál og menningartengda ferðaþjónstu, til þriggja ára á milli ríkisins og sambanda sveitarfélaga um allt land. Samningarnir fela í sér að árlega verður 250,7 m.kr. varið til menningarmála- og menningartengdrar ferðaþjónustu um allt land. Þar með er stuðningi ríkisins beint í einn farveg í því skyni að efla slíkt starf um landið allt og gera það sýnileg.

Samningarnir eru gerðir við Samband sveitafélaga á Norðurlandi Eystra, Austurlandi, Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra.

Markmið menningarsamninganna er að efla samstarf á sviði menningarmála á hverju svæði auk þess að stuðla að nýsköpun, fjölbreytni og fjölgun atvinnutækifæra á sviði í menningar, lista og menningartengdar ferðaþjónustu. Á hverju svæði starfa menningarráð sem eru vettvangur samtarfs sveitarfélganna og hafa það hlutverk að standa fyrir þróunarstarfi og úthluta fé til verkefna á sviði menningar og menningartengdrar ferðaþjónstu.

Samtals nemur árlegt fjárframlag til samninganna tæpum 250,7 m.kr. á ári. Þar af er hlutur ríkisins 179,2 m.kr. eða 60% af heildarframlagi. Hann skiptist þannig að mennta- og menningarmálaráðneyti leggur til 139,2 m.kr. og iðnaðarráðuneyti 40 m.kr. Sveitarfélögin leggja til 40% af heildinni eða samtals 71,6 m.kr. Við skiptingu fjárframlaga til hvers svæðis var tekið tillit til stærðar og vegalengda innan þess, fjölda íbúa, atvinnuástands og fjarlægðar frá höfuðborgarsvæðinu. Heildarframlag til Austurlands nemur árlega 44,5 m.kr., til Norðurlands eystra og Suðurlands 37,2 m.kr., til Vestfjarða 34,7 m.kr. og til Norðurlands vestra, Vesturlands og Suðurnesja 32,3 m.kr.

Fyrsti menningarsamningurinn gerður við Austurland árið 2001 en frá árinu 2007 hafa verið í gildi menningarsamningar við alla landshluta utan höfuðborgarsvæðisins. Hefur árangur samninganna verið góður. Hafa þeir stuðlað að fjölgun launaðra starfa við menningu og menningartenda ferðaþjónstu, afleidd störf hafa orðið til, menning herfur orðið aðgengilegri fyrir almenning og samstarf á milli landshluta á sviði menningarmála hefur aukist.

Iðnaðarráðherra og menntamálaráðherra 

 

 

 

Iðnaðarráðherra og menntamálaráðherra

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta