Umsóknarfrestur vegna styrkja til mannréttindamála framlengdur til 27. apríl
Umsóknarfrestur vegna styrkja til mannréttindamála hefur verið framlengdur til 27 apríl nk. Samkvæmt fjárlögum ársins 2011 hefur innanríkisráðuneytið 6,7 milljónir króna til ráðstöfunar vegna verkefna að mannréttindamálum. Ráðuneytið hyggst úthluta þessu fé á grundvelli umsókna frá stofnunum og félagasamtökum sem starfa að mannréttindamálum.
Umsóknirnar skulu berast ráðuneytinu eigi síðar en 27. apríl nk.