Starfsmaður við úttekt á alþjóðlegu samstarfi
Mennta-og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir starfsmanni til að vinna við úttekt á þátttöku Íslands í rammaáætlunum ESB um rannsóknir.
Starfið er hlutastarf (50%) í sex mánuði og felst í því að aðstoða fagaðila við öflun og úrvinnslu gagna, viðtöl, skýrsluskrif og kynningar. Starfsmaður þarf að geta hafið störf strax.
Umsækjandi skal hafa lokið háskólanámi á framhaldsstigi (meistara- eða doktorsprófi eða sambærilegu), hafa reynslu af alþjóðlegum rannsóknarverkefnum og vera vel ritfær á ensku og íslensku. Reynsla af verkefnisstjórnun og/eða félagsfræðilegum rannsóknum er kostur. Leitað er eftir dugmiklum einstaklingi með góða hæfni í mannlegum samskiptum.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Baldursson, skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu, í síma 545 9500 eða í tölvupósti á [email protected]
-
Umsóknarfrestur er til 9. maí 2011.
-
Umsóknir skulu sendar til mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík eða í tölvupósti á [email protected]