Embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands
Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Vesturlands rann út mánudaginn 25. febrúar sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust sjö umsóknir um stöðuna, frá þremum konum og fjórum körlum.
Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Vesturlands rann út mánudaginn 25. febrúar sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust sjö umsóknir um stöðuna, frá þrem konum og fjórum körlum. Umsækjendur eru:
- Atli Harðarson, aðstoðarskólameistari,
- Geir Hólmarsson, framhaldsskólakennari,
- Ingi Bogi Bogason, sjálfstætt starfandi ráðgjafi,
- Ingileif Oddsdóttir, framhaldsskólakennari og náms- og starfsráðgjafi,
- Jóhannes Ágústsson, fyrrverandi skólastjóri,
- Lind Völundardóttir, framhaldsskólakennari og
- Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari.
Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. ágúst nk., að fenginni umsögn hluteigandi skólanefndar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.