Stjórnvöld svara ESA vegna Icesave málsins
Ísland hafnar því að brot gegn innistæðutryggingatilskipun Evrópusambandsins hafi átt sér stað og krefst þess að mál Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) verði látið niður falla. Sendiherra Íslands í Brussel afhenti bréf efnahags- og viðskiptaráðuneytisins þess efnis á skrifstofu ESA í dag, en þar er málstaður Íslands í Icesave málinu settur fram.
Í bréfinu kemur fram að allar horfur séu á því að þrotabú Landsbankans muni standa undir þorra krafna vegna innistæðna. Útgreiðslur úr búinu hefjist á næstu misserum. Einhliða aðgerðir Breta og Hollendinga hafi þó tafið fyrir. Þar sem Ísland hafi ekki brotið gegn samningsskuldbindingum með neinum hætti telji stjórnvöld að ESA geti lokið málinu, án frekari aðgerða.
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið þakkar þeim sérfræðingum og félagasamtökum sem lögðu til gögn og liðsinntu við undirbúning málsins. Þóra Margrét Hjaltested og Kristján Andri Stefánsson önnuðust verkstjórn fyrir hönd efnahags- og viðskiptaráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins og nutu vinnuframlags m.a. Jóhannesar Karls Sveinssonar, Peters Dyrberg, Dóru Guðmundsdóttur, Eiríks S. Svavarssonar, Reimars Péturssonar og Stefáns Más Stefánssonar.
Svarbréf stjórnvalda til ESA (á ensku)
Glærusýning efnahags- og viðskiptaráðherra á blaðamannafundi
Fylgiskjal við svar stjórnvalda til ESA, 2. maí 2011 (á ensku)