Alþjóðleg skýrsla um konur og fæðuöryggi kynnt
Utanríkisráðuneytið, í samvinnu við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Alþjóðlegan jafnréttisskóla HÍ (GEST) og Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ), kynnir skýrslu Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) um konur og fæðuöryggi, "The State of Food and Agriculture 2010-2011. Women in Agriculture, Closing the Gender Gap for Development." verður kynnt mánudaginn 16. maí frá kl: 14 til 16 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins, Suðurgötu 41.
Dr. Marcela Villarreal, yfirmaður Kynja- og jafnréttisdeildar FAO, kynnir skýrsluna.
Á fundinum verður enskri samantekt skýrslunnar dreift.
Dagskrá:
Hermann Örn Ingólfsson, sviðstjóri þróunarsamvinnusviðs utanríkisráðuneytisins ávarpar fundinn.
Dr. Marcela Villarreal, yfirmaður kynja- og jafnréttisdeildar FAO, kynnir skýrsluna.
Irma Erlingsdóttir, framkvæmdastjóri GEST og EDDU - öndvegisseturs: "Women and the Politics of Development."
Pallborðsumræður að erindum loknum:
Dr. Marcela Villarreal, FAO.
Dr. Grímur Valdimarsson, fyrrv. yfirmaður fiskiðnaðarsviðs FAO.
Dr. Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna.
Dr. Sigríður Þorgeirsdóttir prófessor HÍ.
Þórdís Sigurðardóttir, skrifstofustjóri Þróunarsamvinnustofnunar (ÞSSÍ).
Fundarstjóri: Guðni Bragason, fastafulltrúi hjá FAO.