Hoppa yfir valmynd
14. maí 2011 Matvælaráðuneytið

Markmið Beinu brautarinnar að nást

Horfur eru á að allur þorri þeirra fyrirtækja sem falla undir samkomulag um skuldaúrvinnslu lítilla og meðalstórra fyrirtækja fái tilboð um endurskipulagningu skulda sinna fyrir 1. júní nk. Í einstökum tilvikum munu sumir bankanna þurfa júnímánuð til að ljúka tillögugerð. Tæplega 2000 fyrirtæki sem Beina brautin svokallaða nær til hafa nú þegar fengið lausn sinna mála hjá bönkunum, samkvæmt upplýsingum sem efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur kallað eftir.

Alls nær samkomulagið til um 6000 fyrirtækja, þ.e. þeirra sem eru með skuldir á milli 10-1000 milljónir króna. Tæp 2000 þessara fyrirtækja eru ekki í greiðsluvanda og þurfa ekki aðstoð. Um 1500 þeirra hafa neikvæðar rekstrarhorfur og fara því að líkindum í þrot. Önnur hafa þegið tilboð fjármálafyrirtækja um 25% lækkun eftirstöðva erlendra og gengistryggðra lána og enn önnur hafa fengið skuldavanda sinn leystan með öðrum hætti en afskriftum, svo sem lánalengingum eða annars konar umbreytingum. Þau sem eftir standa hafa nú þegar fengið eða munu fá tilboð um endurskipulagningu skulda í síðasta lagi fyrir lok júní.

Fjármálafyrirtækin hafa einnig boðið skuldaaðlögun fyrir fyrirtæki sem skulda meira en 1000 milljónir króna. Aukinn kraftur er nú í þeirri vinnu og bankarnir hafa sett sér metnaðarfull markmið um að ljúka þeirri vinnu að langmestu leyti fyrir árslok. Efnahags- og viðskiptaráðuneytið og eftirlitsstofnanir munu ganga á eftir því að þau markmið náist.

Endurskipulagning skulda bæði fyrirtækja og heimila er nauðsynlegur þáttur í að efla fjárfestingu í íslensku hagkerfi, sem aftur leiðir af sér hagvöxt og störf. Samkomulagið hefur rofið kyrrstöðu í skuldaúrvinnslu  fyrirtækja og leitt til þess að fyrirtæki með heilbrigðan rekstrargrundvöll fá fast land undir fætur. Lítil og meðalstór fyrirtæki standa undir drjúgum hluta verðmæta- og atvinnusköpunar í landinu og eru um 90% af fyrirtækjum landsins.

Samkvæmt upplýsingum frá fjórum stærstu fjármálafyrirtækjunum er staða mála í heild hjá þeim við lok mars sl. þessi:

Fyrirtæki alls, skuldir 10-1000 m.kr.         5.977

Fyrirtæki sem ekki eru í greiðsluvanda  1.974

Fyrirtæki í skuldavanda                                4.003
Leyst með Beinu brautinni                         973
Leyst án afskrifta                                            672
Leyst með afskriftum v/gengislána         280

Úrlausn ekki ákveðin, í skoðun                 526

Innheimta/gjaldþrot                                     1.552

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta