Morgunverðarfundur um verðtryggingu
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið stendur fyrir morgunverðarfundi um verðtryggingu miðvikudaginn 18. maí kl. 8.30-10.00. Fundurinn fer fram í Háskólanum í Reykjavík, stofu M1.01 – Bellatrix.
Eygló Harðardóttir, formaður nefndar um verðtryggingu, afhenti síðastliðinn fimmtudag Árna Páli Árnasyni, efnahags- og viðskiptaráðherra, skýrslu nefndar sem falið var að kanna forsendur verðtryggingar á Íslandi og meta kosti og galla þess að draga úr vægi verðtryggingar í íslensku fjármálakerfi, án þess að fjármálastöðugleika sé ógnað.
Dagskrá:
- Eygló Harðardóttir, alþingismaður og formaður nefndar um verðtryggingu, kynnir stuttlega niðurstöður nefndarinnar
- Marinó G. Njálsson, framkvæmdastjóri Betri ákvarðana
- Vilhjálmur Þorsteinsson, fjárfestir og fulltrúi Samfylkingar í nefnd um verðtryggingu
- Pétur H. Blöndal, alþingismaður og fulltrúi Sjálfstæðisflokks í nefnd um verðtryggingu
Að framsögum loknum verða pallborðsumræður.
- Friðrik Már Baldursson, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík, stýrir fundi.
.