Landgræðslan og Landmælingar í hópi fyrirmyndarstofnana
Landgræðsla ríkisins varð á dögunum í þriðja sæti í vali SFR um stofnun ársins í hópi stærri stofnana. Þá varð önnur stofnun umhverfisráðuneytisins, Landmælingar Íslands, í sjötta sæti í hópi minni stofnana.
Þetta er í sjötta sinn sem SFR stendur að vali á Stofnun ársins en könnunin var gerð meðal félagsmanna SFR og annarra ríkisstarfsmanna á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað. Rúmlega 200 stofnanir tóku þátt í valinu. Samhliða vali á stofnun ársins stendur VR fyrir vali á fyrirtæki ársins en um er að ræða eina stærstu reglulegu vinnumarkaðskönnun sem gerð er hér á landi.
Sérstakur saksóknari var valinn stofnun ársins í hópi stærri fyrirtækja en Sýslumaðurinn í Vík í hópi þeirra minni.
Umhverfisráðuneytið óskar Landgræðslunni og Landmælingum til hamingju með árangurinn.