Hoppa yfir valmynd
23. maí 2011 Matvælaráðuneytið

Katrín Alda og Rebekka í Einveru semja við Liberty verslunarhúsið um nýju KALDA vorlínuna

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Það eru rétt tæplega þrjú ár síðan systurnar Katrín Alda og Rebekka Rafnsdætur létu tískudrauminn rætast og hófu að framleiða föt undir vörumerkinu KALDA og stofnuðu um leið verslunina Einveru á Laugaveginum. Síðan þá hefur þeim vaxið fiskur um hrygg og fyrir skömmu gerðu þær samning við Liberty verslunarhúsið í London um sölu á nýjustu vorlínu KALDA. Í þessum skrifuðu orðum er verið að ganga frá fyrstu vörusendingunni.

Liberty er meðal þekktari verslana í London og KALDA vorlínan á eftir að sóma sér vel innan um mörg af þekktustu tískumerkjum í heimi. Þá er bara að kíkja á KALDA vorlínuna annað hvort á Laugaveginum eða London!

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta