Fimmtán styrkir til að rannsaka og kynna innlenda orkugjafa og hagkvæma orkunotkun
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra hefur staðfest tillögur Orkuráðs um styrki úr Orkusjóði til rannsóknar- og kynningarverkefna fyrir árið 2011. Styrkirnir fara til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun.
Veittir eru 15 styrkir að upphæð 27,4 milljónir króna. Alls bárust 52 umsóknir um samtals 133 m.kr. og voru í þeim hópi ýmis áhugaverð og mikilsverð verkefni sem ekki var unnt að styrkja að þessu sinni.
Þessir rannsóknar- og fræðslustyrkir eru veittir árlega úr Orkusjóði samkvæmt lögum um Orkustofnun, Orkuráð og Orkusjóð (87/2003) til „sérstakra verkefna á sviði hagkvæmrar orkunotkunar, þ.m.t. til fræðslu og upplýsingastarfsemi“ og til „verkefna sem stuðla að nýtingu á innlendri orku í stað jarðefnaeldsneytis og styrkja alþjóðasamvinnu um slík verkefni“. Í auglýsingu var líkt og undanfarin ár lögð áhersla á verkefni sem snertu hagkvæma orkunýtingu og orkusparnað, innlenda orkugjafa, vistvænt eldsneyti og sparnað jarðefnaeldsneytis. Um hvern styrk er gerður samningur þar sem kveðið er á um verk- og kostnaðaráætlun, áfanga við greiðslu styrkfjárhæðarinnar, framvinduskýrslur og skilagögn. Miðað er við að styrkir úr Orkusjóði geti numið allt að helmingi kostnaðar við verkefnið. Hlutur fræðslu- og kynningarverkefna nemur nú rúmum tíunda hluta heildarupphæðarinnar.
Hæstu styrkirnir fara til verkefna um eldsneytisframleiðslu úr örverum, (3,6 m.kr.), til að skapa eldsneyti úr lífmassa með háhitagösun (4 m.kr.) og til tilraunahverfils fyrir sjávarfallavirkjanir (4,2). Þá fara þrír styrkir til metanverkefna, samtals 6,5 m.kr. Af öðrum verkefnum má nefna styrk til hentugrar vindmyllu fyrir frístundahús og annan til að kanna hvort unnt sé og hagkvæmt að virkja neysluvatnsveitur þar sem oft er talsverður hæðarmunur.
Orkuráð starfar í tengslum við Orkustofnun og er meginhlutverk þess að sjá um rekstur Orkusjóðs, en þaðan eru veitt áhættulán fyrir jarðhitaverkefnum sem og styrkir til rannsókna og fræðsluverkefna um endurnýjanlega orku, orkunýtingu og orkusparnað. Iðnaðarráðherra skipar ráðið til fjögurra ára í senn og starfa þar frá 2007 þau Mörður Árnason, formaður, Bryndís Brandsdóttir, Drífa Hjartardóttir, Guðjón Guðmundsson og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir.