Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á smjöri og ostum.
Með vísan til 65. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og með vísan til reglugerðar nr. 559/2011, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á smjöri og ostum fyrir tímabilið 1. júlí 2011 til 30. júní 2012.
Tollskrárnr: | Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollur |
kg. | % | |||
a) | ||||
0405.xxxx | Smjör og önnur fita | 01.07.11- 30.06.12 | 53.000 | 215,7 |
b) | Ostur og ystingur: | 119.000 | ||
0406.1009 | Annað (nýr ostur, mysuostur o.fl.) | 01.07.11- 30.06.12 | 182,4 | |
0406.2000 | Hvers konar rifinn eða mulinn ostur | 01.07.11- 30.06.12 | 182,4 | |
0406.3000 | Fullunninn ostur, órifinn eða ómulinn | 01.07.11- 30.06.12 | 185,9 | |
0406.4000 | Gráðostur | 01.07.11- 30.06.12 | 193,3 | |
0406.9000 | Annar ostur | 01.07.11- 30.06.12 | 185,0 |
Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt reglugerð nr. 509/2004, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vörunnar. Tilboð skulu ráða úthlutun.
Skriflegar umsóknir skulu berast til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, að Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 15:00 mánudaginn 20. júní n.k.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 8. júní 2011.