Landsbyggð tækifæranna - Þekkingar- og fræðastarf á landsbyggðinni
Miðvikudaginn 8. júní kl. 13:00 – 17:00 verður haldin ráðstefnan Landsbyggð tækifæranna - Þekkingar- og fræðastarf á landsbyggðinni á Grand Hótel
Miðvikudaginn 8. júní kl. 13:00 – 17:00 verður haldin ráðstefnan Landsbyggð tækifæranna - Þekkingar- og fræðastarf á landsbyggðinni á Grand Hótel, Sigtúni 38, Reykjavík (Háteigur A, 4 hæð).
Tilefni ráðstefnunnar er skýrsla mennta- og menningarmálráðuneytis um Þekkingarsetur á Íslandi og nú er ætlunin að móta áframhald þess verkefnis m.a. í tengslum við áherslur Vísinda- og tækniráðs og sóknaráætlanir landshluta (Ísland 2020).
Á ráðstefnunni verður fjallað um mikilvægi og tækifæri þekkingar- og fræðastarfs á landsbyggðinni og tengsl þess við rannsókna- og háskólasamfélagið á höfuðborgarsvæðinu.
Meðal viðfangsefna ráðstefnunnar er að skýra umfang og fjölbreytileika í starfsemi þekkingarsetra víða um land með áherslu á þau tækifæri sem þar liggja. Aukið samstarf þekkingarsetra bæði svæðisbundið og á landsvísu er líklegt til að skila auknum tækifærum til svæðisbundinnar þróunar á Íslandi.Á ráðstefnunni verða 10 stuttir fyrirlestrar og umræður.
- Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfangið [email protected].
- Landsbyggð tækifæranna - Þekkingar- og fræðastarf á landsbyggðinni