Útboð ríkisskuldabréfa erlendis - Ríkissjóður aftur á markað
Ríkissjóður Íslands hefur í dag gengið frá samningum um útgáfu skuldabréfa að fjárhæð 1 milljarði Bandaríkjadala, jafngildi um 114 milljarða króna.
Skuldabréfin bera fasta vexti og eru gefin út til 5 ára á ávöxtunarkröfunni 4,993% vöxtum. Kjörin jafngilda 3,20% álagi á vexti á millibankamarkaði.
Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn um 2 milljörðum Bandaríkjadala. Fjárfestahópurinn samanstendur aðallega af fagfjárfestum frá Bandaríkjunum og Evrópu.
Skuldabréfaútgáfan kom í framhaldi af vikulangri kynningarherferð í Bandaríkjunum og Evrópu. Umsjón var í höndum Barclays Capital, Citi og UBS Investment Bank.
„Þessi aðgerð markar heilmikil tímamót fyrir Ísland“, segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. „ Ég er afar ánægður með að ríkissjóður sé aftur kominn á markað nú aðeins tveimur og hálfu ári eftir hrun. Það er sérstaklega ánægjulegt að það reyndist vera jafn mikil eftirspurn og raun ber vitni. Viðtökur fjárfesta styðja skoðun okkur á því að endurreisn efnahagslífsins sé að heppnast og horfurnar séu góðar. Með þessu er ríkið að brjóta vindinn og það ætti að auðvelda öðrum hið sama í framhaldinu. “