Úthlutun úr barnamenningarsjóði
Úthlutun árið 2011 hefur farið fram og hlutu eftirfarandi styrki úr sjóðnum:
Barnamenningarsjóður starfar skv. reglum nr. 246/1994 og er meginhlutverk hans að styrkja verkefni á sviði barnamenningar. Auglýst var eftir umsóknum 29. janúar sl. og rann umsóknarfrestur út 1. mars sl. Sjóðnum bárust alls 63 umsóknir frá 58 aðilum fyrir 35.680.348,- kr.
Úthlutun árið 2011 hefur farið fram og hlutu eftirfarandi styrki úr sjóðnum:
Umsækjandi | Verkefni | Styrkur |
Brúðuheimar ehf. | vegna menningardagskrárinnar Leikur á laugardegi | 400.000 kr. |
Pamela De Sensi) | til klassísku tónleikanna Töfrahurð | 200.000 kr. |
Bára Grímsdóttir | til verkefnisins Krummi krunkar úti - Lærum að syngja og kveða íslensk alþýðulög | 100.000 kr. |
Myndlistaskólinn í Reykjavík ses. | til að halda sumarnámskeið fyrir blind og sjónskert börn | 200.000 kr. |
Óperarctic-félagið | til að enduruppaka sýninguna „Herra Pottur og ungrú Lok“ | 200.000 kr. |
Tónskáldafélag Íslands | til barnatónleika á Norrænum músíkdögum 2011 | 150.000 kr. |
Vala Þórsdóttir og Agnieszka Nowak | vegna barnabókar á íslensku og pólsku og sænsku og pólsku | 250.000 kr. |
Tinna Grétarsdóttir | til dansleikhússýningarinnar Út í veður og vind | 250.000 kr. |
Hugi Guðmundsson | til brúðuleikhússýningarinnar Hafmaðurinn NADDI | 300.000 kr. |
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra | til verkefnisins Í menningarheimi Döff grunnskólabarna | 250.000 kr. |
Kristín Ragna Gunnarsdóttir | vegna teikni- og hreyfimyndarinnar Völuspá | 200.000 kr. |
Tónlistarhús Kópavogs-salurinn | vegna verkefnisins Lesstundir með tónlistarívafi | 200.000 kr. |
Leikhúsið 10 fingur | til brúðuleiksýningarinnar Litla skrímslið | 400.000 kr. |
Skaftfell,sjálfseignarstofnun | Hvað býr í kassanum? - myndlistarrannsókn fyrir ungt fólk | 200.000 kr. |
Menningarfélagið Hof ses. | vegna tveggja samstarfstónleika á Akureyrarvöku 2011 | 150.000 kr. |
Fornleifaskóli barnanna | vegna heimsóknar fræðimanna í Litlulaugaskóla á haustönn 2011 | 100.000 kr. |
Möguleikhúsið | til að setja upp leikverkin Eldslogarnir fljúga og Eldsins reiðarslög | 800.000 kr. |
Sigursveinn Magnússon | til verkefnisins Ungir og aldnir mætast á Berjadögum í Ólafsfirði | 80.000 kr. |
Myndlistarskóli Grafarvogs | til að halda myndlistarnámskeið fyrir börn og fullorðna saman | 100.000 kr. |
Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar, dansdeild | vegna þátttöku nemenda í norrænu samstarfsverkefni í nútímadansi í til Finnlandi | 220.000 kr. |
Rebekka Eiríksdóttir | til leikfangasafnsins „leggur og skel“ | 75.000 kr. |
Listasafn Reykjanesbæjar | til Norræns samvinnuverkefnis á sviði myndlistar | 200.000 kr. |
Stjórn barnamenningarsjóðs