Hoppa yfir valmynd
10. júní 2011 Matvælaráðuneytið

Hugmyndafundur | Hönnunarstefna

Hugmyndafundur | Hönnunarstefna

Að morgni miðvikudagsins 15. júní næstkomandi verður haldinn vinnufundur um Mótun hönnunarstefnu Íslands. 
Áhugasömum gefst tækifæri til að taka þátt í fundinum. Fundinum er ætlað að fá fram aðaláherslur og sýn hönnuða, arkitekta og fagfólks í hönnun með opinni umræðu og hugmyndavinnu, jafnframt því að ná fram samtali við aðila atvinnulífs og stjórnsýslu. Takmarkaður sætafjöldi er í boði.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í Hugmyndafundinum eða þyrstir í frekari upplýsingar, sendu okkur línu á [email protected].
 
Dagskrá fundarins:

8:30 Morgunverður

8:50 Sigurður Þorsteinsson, formaður stýrihóps kynnir verkefnið Mótun Hönnunarstefnu Íslands

9:05 Halla Helgadóttir kynnir undibrúningsvinnu sem unnin var fyrir verkefnið 2010

9:20 Fulltrúar fagstétta kynna helstu áherslupunkta síns félags

10:15 Hlé

10:30 Sigurður Þorsteinsson opnar umræður

10:40 Umræður  - þemu - umræðuleiðbeinandi og skrásetjari á hverju borði

12:00 Forgangsröðun hugmynda

12:20 Hlé

12:30 Niðurstöður kynntar af borðstjórnendum

12:55 Sigurður Þorsteinsson lokar deginum

13:00 Fundi slitið

Sjá einnig:
http://www.honnunarmidstod.is/honnunarstefna/
http://www.honnunarmidstod.is/Frettir/Lesafrett/2368

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta