Umsögn hagfræðiprófessors
Nr. 24/2011
Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor hefur unnið umsögn um frumvarp til nýrra laga um stjórn fiskveiða. Umsögnin snýr að frumvarpi sem nú er í meðförum sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis.
Þórólfur bendir í umsögn sinni á að reiknaður hagnaður útgerðar muni við samþykkt frumvarpsins lækka úr 20 í 17 milljarða og ekki sé hægt að tala um að grundvelli sé kippt undan rekstri útgerðar með samþykkt þess. Engu að síður muni takmarkanir á framsali og stjórnvaldsstýrð tilfærsla draga úr hagnaði og afrakstri.