Hoppa yfir valmynd
21. júní 2011 Matvælaráðuneytið

Útboð vegna olíuleitar og vinnslu á Drekasvæði hefst 3. október

Ákveðið hefur verið að opnun á útboði sérleyfa á Drekasvæðinu verði frestað til 3. október n.k. Umsóknarfrestur verður til 2. apríl 2012.

Ástæða þessara breytinga á dagsetningum er að ekki náðist að ljúka við nauðsynlegar lagabreytingar varðandi skattlagningu kolvetnisvinnslu og leyfisveitingar á vorþingi fyrir sumarhlé Alþingis, en um nauðsynlegar lagabreytingar er að ræða til að útboðið geti hafist.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta