Styrkir til háskólanáms í Rússlandi
Stjórnvöld í Rússlandi bjóða fram 3 styrki handa Íslendingum til háskólanáms skólaárið 2011-2012. Í boði er einn styrkur á bakkalár- eða meistarastigi, einn styrkur til doktorsnáms eða annars framhaldsnáms og einn styrkur til skemmri námsdvalar.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á eftirfarandi vefslóðum:
http://dic.edu.ru/enter/2011
http://www.russia.edu.ru/enter/2011
Umsóknum skal skilað til mennta- og menningarmálaráðuneytisins og er umsóknarfrestur til 15. júlí 2011.