Nýr vefur um mótun hönnunarstefnu fyrir Ísland
Vefurinn honnunarstefna.is hefur nú verið opnaður, en það er vefur verkefnisins Mótun Hönnunarstefnu Íslands.
Markmiðið með því að móta hönnunarstefnu fyrir Ísland er að auka vægi hönnunar í allri vöruhugsun, vöruþróun og framleiðslu með það að sjónarmiði að styrkja samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja og þ.a.l. stuðla að aukinni samkeppnishæfni landsins.
Fylgist með!