Afhenti Ítalíuforseta trúnaðarbréf
Berglind Ásgeirsdóttir afhenti í dag Giorgio Napolitano Ítalíuforseta trúnaðarbréf sem sendiherra Íslands gagnvart Ítalíu, með aðsetur í París. Að afhendingu lokinni ræddu þau umsókn Íslands að Evrópusambandinu og áhuga á auknu samstarfi ríkjanna, einkum á sviði eldfjallarannsókna .