Hoppa yfir valmynd
28. júlí 2011 Matvælaráðuneytið

Ný stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða

Samkvæmt 2. gr. laga nr. 75/2011 um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða skipar iðnaðarráðherra fjóra fulltrúa í stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða til tveggja ára í senn. Í nýrri stjórn eiga sæti Albína Hulda Thordarson, formaður, Anna G. Sverrisdóttir, tilnefnd af Samtökum ferðaþjónustunnar, Guðjón Bragason, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitafélaga, Sævar Skaptason, tilnefndur af Samtökum ferðaþjónustunnar.

Sjóðurinn er ábyrgð iðnaðarráðherra en Ferðamálastofa hefur með höndum rekstur hans og alla aðra umsýslu.

Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða, leitast við að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins og fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði. Hlutverki sínu skal sjóðurinn sinna með því að veita fjármagni annarsvegar til uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á ferðamannastöðum sem eru í eigu opinberra aðila eða á náttúruverndarsvæðum og hinsvegar til framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og verndun náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila jafn sem einkaaðila.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta