Fjórar umsóknir um setningu í embætti hæstaréttardómara
Fjórir sóttu um setningu í embætti hæstaréttardómara sem auglýst var laus til umsóknar hinn 15. júlí síðastliðinn en umsóknarfrestur var til 8. ágúst. Umsækjendur eru:
Benedikt Bogason, dómstjóri héraðsdóms Vesturlands.
Guðjón Ólafur Jónsson, hæstaréttarlögmaður.
Ingimundur Einarsson, héraðsdómari.
Þorgeir Ingi Njálsson, dómstjóri héraðsdóms Reykjaness.