Embætti skólameistara við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Ingileif Oddsdóttur í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra til fimm ára.
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Ingileif Oddsdóttur í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra til fimm ára.
Ingileif hefur kennt við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra nær samfellt frá árinu 1995. Hún hefur starfað sem náms- og starfsráðgjafi við skólann frá árinu 2002, sinnt þar kennslu og er fagstjóri í sálfræði og uppeldisfræði.
Hún hefur meistaragráðu í náms- og starfsráðgjöf og er að ljúka meistarsnámi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Einnig hefur hún BA gráðu í sálfræði og kennsluréttindi í uppeldis- og kennslufræðum.