Opið fyrir innflutning nautakjöts á lækkuðum tollum
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið vill af gefnu tilefni vekja athygli á að opið er fyrir innflutning nautakjöts á lækkuðum tollum. Hefur heimildin sem rennur út 30. september næstkomandi verið í gildi frá því 10. júní á þessu sumri.
Upphaflega átti opinn tollkvóti í nautakjöti að vera í gildi til 30. júlí en vegna aðstæðna á markaði var heimild til innflutnings framlengd til 30. september 2011. Um er að ræða almenna heimild sem jafnt heildsalar sem veitingahús í landinu nýta sér um þessar mundir.
Í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu er fylgst með ástandi mála á kjötmarkaði og taka heimildir sem ráðuneytið veitir til innflutnings mið af aðstæðum á markaði.