Fjórir tilnefndir til fjölmiðlaverðlauna
Dómnefnd hefur tilnefnt fjóra til fjölmiðlaverðlauna umhverfisráðuneytisins sem veitt verða í fyrsta sinn 16. september næstkomandi á Degi íslenskrar náttúru.
Tilnefnd til verðlaunanna eru:
- Morgunblaðið fyrir upplýsandi og vandaða umfjöllun um áhrif loftslagsbreytinga á íslenska náttúru í greinarflokknum Hamskipti lífríkis og landslags. Greinarnar skrifuðu blaðamennirnir Guðni Einarsson og Rúnar Pálmason en þeim til aðstoðar var Elín Esther Magnúsdóttir sem vann grafík, Sigurbjörg Arnarsdóttir og Ingólfur Þorsteinsson sem brutu flokkinn um og flestar ljósmyndir tóku Ómar Óskarsson og Ragnar Axelsson.
- Ragnar Axelsson ljósmyndari fyrir að beina sjónum að náttúruvernd og samspili manns og náttúru í verkum sínum.
- Steinunn Harðardóttir stjórnandi þáttarins Út um græna grundu á Rás 1 fyrir umfjöllun um íslenska náttúru, umhverfið og ferðamál.
Svavar Hávarðsson blaðamaður Fréttablaðsins fyrir ítarlega umfjöllun um mengun sem ógnar náttúru og fólki. - Svavar Hávarðsson blaðamaður Fréttablaðsins fyrir ítarlega umfjöllun um mengun sem ógnar náttúru og fólki.
Verðlaunagripurinn er listmunur hannaður af Finni Arnari Arnarsyni.
Í dómnefnd vegna verðlaunanna sitja María Ellingsen formaður, Jónatan Garðarsson og Valgerður A. Jóhannsdóttir.