Starfshópur til að gera tillögur um hvernig standa megi að því að endurnýja og styrkja holdanautastofn á Íslandi
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp sem hafi það hlutverk að gera tillögur um hverning standa megi að því að endurnýja og styrkja holdanautastofn á Íslandi.
Nefndina skipa:
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, formaður, skipuð án tilnefningar.
- Auður Lilja Arnþórsdóttir, sóttvarnadýralæknir, skipuð skv. tillögu Matvælastofnunnar.
- Magnús B. Jónsson, ráðunautur, skipaður skv. tilnefningu Bændasamtaka Íslands.
- Snorri Örn Hilmarsson, formaður Félags nautakjötsframleiðenda, skipaður skv. tilnefningu Bændasamtaka Íslands.