Sérfræðingur á skrifstofu menntamála - námskrárgerð og þróun námsbrauta á framhaldsskólastigi
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar tímabundið starf sérfræðings í í málefnum er einkum varða námskrárgerð og þróun námsbrauta á framhaldsskólastigi, á skrifstofu menntamála, stefnumótunar- og þróunardeild. Um er að ræða fullt starf í eitt ár.

Leitað er að háskólamenntuðum einstaklingi með yfirgripsmikla þekkingu á framhaldsskólakerfi landsins, einkum starfsmenntun, innsýn inn í þær breytingar sem ný aðalnámskrá framhaldsskóla boðar og starfsreynslu sem framhaldsskólakennari eða stjórnandi í framhaldsskóla. Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli og þekking á nýtingu upplýsingatækni eru nauðsynlegir kostir ásamt ritfærni og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins.
- Nánari upplýsingar veitir Jens Pétur Hjaltested á upplýsinga- og fjármálasviði.
- Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 25. október 2011.