Evrópusambandið og umhverfismál
Utanríkisráðuneyti og umhverfisráðuneyti í samvinnu við framkvæmdastjórn ESB standa þann 25. október fyrir málþingi um ESB og umhverfismál.
Á málþinginu verður fjallað um hvaða áhrif þátttaka Íslands í Evrópska efnhagssvæðinu (EES) hefur haft á umhverfislöggjöf landsins og hvaða breytingar hugsanleg aðild að Evrópusambandinu myndi hafa í för með sér á því sviði.
Þá verður litið til hlutverks umhverfisverndarsamtaka innan ESB, fjallað um náttúruverndarlöggjöf sambandsins og heyrt af reynslu Eista sem nýlega gengu í sambandið.
Aðgangur er ókeypis og ráðstefnan er öllum opin. Skráningar skulu sendar á netfangið [email protected] fyrir 13. október.
Allir sem áhuga hafa á umhverfis- og náttúruverndarmálum er hvattir til að mæta.