Ráðstefna um fæðuöryggi 17. október 2011
Matvælaframleiðsla morgundagsins er heiti á hádegisfundi sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið stendur fyrir í samvinnu við Bændasamtök Íslands, Landgræðslu ríkisins og Landbúnaðarháskóla Íslands.
Fyrirlesari á fundinum er ástralinn Julian Gripp sem er heimsþekkur fyrirlesari og fræðimaður. Eftir erindi hans verða pallborðsumræður undir stjórn Gríms Valdimarssonar fyrrverandi forstöðumanns hjá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna.
Fundurinn verður haldinn í fyrirlestrarsal Íslenskrar erfðagreiningar í Vatnsmýrinni og stendur frá 12-13:30. Aðgangur er ókeypis og hádegishressing í boði fyrir fundinn.
Sjá nánar á síðu Bændasamtakanna, bondi.is