Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir styrkumsóknum.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða opnar í dag fyrir umsóknir um styrki til uppbyggingar á
ferðamannastöðum fyrir árið 2012. Markmið og hlutverk sjóðsins er að stuðla að
uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða í opinberri eigu eða umsjón um
land allt. Umsóknarfrestur er til 25. nóvember.
Markmið og hlutverk Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða í opinberri eigu eða umsjón um land allt. Þá skal með fjármagni úr sjóðnum leitast við að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins.
Einnig er sjóðnum ætlað að fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði.
Fjármagni úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða skal varið til:
Uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á ferðamannastöðum sem eru í eigu opinberra aðila eða á náttúruverndarsvæðum.
Framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og verndun náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila jafnt sem einkaaðila.
Framkvæmdasjóði ferðamannastaða er heimilt að fjármagna undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna framkvæmda en sjóðnum er ekki heimilt að bera rekstrarkostnað.
Forsendur styrkveitinga:
Framkvæmdasjóðurinn leggur sérstaka áherslu á verkefni þar sem horft er til heildarmyndar
ferðamannastaða og ferðamannaleiða.
Hægt er að sækja um styrki fyrir skipulags- og hönnunarvinnu ásamt undirbúningsrannsóknum. Við skipulag og hönnun mannvirkja er höfð til hliðsjónar “Menningarstefna í mannvirkjagerð” sem gefin var út af Menntamálaráðaneytinu í apríl 2007,
Leiðbeiningarritið Góðir staðir, sem fjallar um uppbyggingu vandaðra ferðamannastaða (í vinnslu), og skipulagslög nr. 123/2010.
Ef sótt er um styrk fyrir byggingu mannvirkja eða aðrar framkvæmdir verður skipulag,
fullnaðarhönnun og framkvæmdaleyfi að liggja fyrir.
Framlög til einkaaðila eru háð því skilyrði að um sé að ræða ferðamannastaði sem eru opnir almenningi.
Að jafnaði getur styrkur ekki numið hærri upphæð en 50% af kostnaði.
Heimilt er að áfangaskipta verkefnum og styrkveitingu í 3-5 áfanga á jafnmörgum árum.
Styrkþegi er ábyrgur fyrir eðlilegu viðhaldi og rekstri svæðis og mannvirkja er tengjast viðkomandi verkefni eftir að framkvæmdum lýkur.
Ekki er hægt að nýta neinn hluta styrkupphæðarinnar til rekstrarkostnaðar viðkomandi ferðamannastaðar eða mannvirkja.
Umsóknarfrestur er til 25. nóvember og er sótt um á vef Ferðamálastofu.
Nánari upplýsingar veitir Sveinn Rúnar Traustason umhverfisstjóri Ferðamálastofu í síma 535-5500 eða með vefpósti [email protected].