Umsagnarferli vegna hvítbókar hafið
Opið umsagnarferli vegna Hvítbókar um löggjöf til verndar náttúru Íslands er nú hafið, en bókin var til umfjöllunar á VII. Umhverfisþingi sem haldið var á Selfossi á föstudag. Umsagnir um bókina skulu berast umhverfisráðuneytinu fyrir 15. desember næstkomandi en að því loknu hefst vinna við gerð frumvarps um breytingar á náttúruverndarlögum.
Við endurskoðun náttúruverndarlaga verða framkomnar athugasemdir hafðar til hliðsjónar auk þeirrar miklu og góðu umræðu sem fram fór um hvítbókina á umhverfisþingi.
Á Umhverfisþingi sl. föstudag fór Aagot V. Óskarsdóttir, ritstjóri hvítbókarinnar, yfir helstu atriði hennar og var í kjölfarið efnt til umræðu um hana í svokölluðu heimskaffi þar sem um 300 þingfulltrúar ræddu hvers þurfi að gæta til að hvítbókin marki þáttaskil í náttúruvernd á Íslandi. Kom í ljós við þær umræður almennt fylgi við skilaboð og áherslur hvítbókarinnar þótt einhverjar spurningar væru einnig settar fram um efni bókarinnar. Þá var mikil áhersla lögð á kynningu og fræðslu um hvítbók og að nauðsynlegt væri að hafa bæði fjármagn og kjark til að fylgja boðskap hennar eftir.
Hvítbókin kom einnig við sögu í þremur málstofum þingsins þar sem rætt var um friðlýsingar og framkvæmd náttúruverndaráætlunar, náttúruvísindi og viðmið fyrir náttúruvernd og útivist, ferðaþjónustu og náttúruvernd. Í fjórðu málstofunni ræddu ungmenni hins vegar áherslur sínar við umhverfis- og náttúruvernd.
Hvítbókina má nálgast í rafrænu formi á heimasíðu umhverfisráðuneytisins (tengill) eða kaupa í pappírsformi í Bóksölu stúdenta í Háskólatorgi.
Umsagnir vegna hvítbókar skal senda á netfangið [email protected] eða á:
Umhverfisráðuneytið
Skuggasund 1
150 Reykjavík
Hvítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands heildarrit
Hvítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands skipt eftir köflum
Frétt umhverfisráðuneytisins af útgáfu hvítbókar
Glærukynning Aagotar V. Óskarsdóttur á Hvítbók frá Umhverfisþingi
Upptaka frá Umhverfisþingi - kynningu á Hvítbók er að finna í fyrsta hluta upptökunnar