Ný stjórn Bankasýslu ríkisins skipuð
Þann 24. október síðastliðinn óskuðu stjórnarmenn Bankasýslu ríkisins að verða leystir frá störfum. Ný stjórn Bankasýslu ríkisins hefur nú verið skipuð.
Stjórnarmenn eru Guðrún Ragnarsdóttir formaður, Jón Sigurðsson varaformaður og Hulda Dóra Styrmisdóttir. Egill Tryggvason er varamaður.
Fráfarandi stjórn eru þökkuð vel unnin störf.