Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Kynning á niðurstöðum barnaréttarnefndar SÞ á stöðu Íslands

Niðurstöður barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna vegna framkvæmdar Íslands á barnasáttmála SÞ verða kynntar á morgunverðarfundi næstkomandi fimmtudag 17. nóvember. Fundurinn fer fram á Kornhlöðulofti Lækjarbrekku og mun standa milli klukkan 8.45 og 10.30.

Sendinefnd Íslands sat fyrir svörum um framkvæmd barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna á Íslandi á fundi í Genf í lok september. Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, fór fyrir sendinefndinni og flutti inngangsorð við fyrirtökuna. Auk hennar voru fulltrúar Íslands þau María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur í innanríkisráðuneytinu, Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, Guðni Olgeirsson, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Margrét Björnsdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu. Einnig sat fundinn Veturliði Stefánsson, fulltrúi fastanefndar Íslands í Genf.

Dagskrá fundarins á fimmtudag verður svohljóðandi:

  • 8.50 - 9.30: Sendinefnd Íslands segir frá undirbúningi og framkvæmd fyrirtökunnar, helstu niðurstöðum og því hvernig stjórnvöld hyggjast fylgja tillögum nefndarinnar eftir.
  • 9.30 - 10.00: Umboðsmaður barna og fulltrúar Mannréttindaskrifstofu Íslands, Barnaheilla og UNICEF segja frá aðkomu sinni og sýn í tengslum við fyrirtökuna.
  • 10.00 - 10.30: Umræður.

Kynningin er öllum opin. Gestir eru hvattir til að mæta og koma upplýsingum um fundinn á framfæri við alla áhugasama. Boðið verður uppá léttar kaffiveitingar.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta