Fræðslufundur um skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2010
Stjórnarráðið og umboðsmaður Alþingis efna á morgun, 1. desember, til opins fræðslufundar fyrir starfsfólk stjórnsýslunnar í tilefni af útkomu á skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2010. Fundurinn verður haldinn í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík milli kl. 15 og 17. Sjá nánar meðfylgjandi dagskrá.
Skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2010
Lærdómur og fróðleikur
Fræðslufundurinn verður haldinn í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu fimmtudaginn 1. desember nk. milli kl. 15 og 17.
Dagskrá:
- Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins, setur fundinn.
- Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis.
-Starf umboðsmanns 2010 – staðan nú – Stjórnsýslan í ljósi skýrslu umboðsmanns.
-Efni úr formála: Málefni opinberra starfsmanna, eftirlitsþátturinn í starfi stjórnvalda, með lögum skal land byggja – gæði lagasetningar – aðgengi að upplýsingum í stjórnsýslunni.
- Berglind Bára Sigurjónsdóttir, skrifstofustjóri.
-Svör við erindum og málshraðareglur í stjórnsýslunni.
- Særún María Gunnarsdóttir, lögfræðingur.
- Helstu viðfangsefni umboðsmanns á árinu 2010 – framkvæmd stjórnsýslulaga og reglna
- Endurnýjuð heimasíða umboðsmanns Alþingis – Meiri upplýsingar um afgreidd mál
- Fyrirspurnir og umræður.
Fundarstjóri: Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri.
Vakin er athygli á því að hægt er að nálgast skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2010 á heimasíðu embættisins, www.umbodsmadur.is, sjá fréttir.