Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2011 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Skólar á grænni grein eflast

Grænfáninn.
Grænfáni blaktir við hlið íslenska fánans.

Skólum á grænni grein vex fiskur um hrygg á fullveldisdaginn, 1. desember. Þá verður undirritaður þriggja ára styrktarsamningur milli umhverfisráðuneytisins, mennta- menningarmálaráðuneytisins og Landverndar, sem stýrir verkefninu en það er einnig þekkt sem Grænfánaverkefnið.

Samningurinn verður undirritaður í Kvennaskólanum í Reykjavík, sem er 200. skólinn á Íslandi sem hóf þátttöku í verkefninu. Til gamans má geta að 100. skólinn sem skráði sig til leiks var grunnskóli, Ingunnarskóli í Reykjavík og 100. skólinn til að hljóta Grænfánann var leikskóli, Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit. Að auki taka þrír af sjö háskólum þátt í verkefninu svo það nær nú til allra skólastiga á Íslandi. 

Skólar á grænni grein (Eco-Schools) er alþjóðlegt verkefni sem Landvernd hefur rekið hér á landi í 10 ár. Þátttökuskólar miða að því að geta flaggað alþjóðlegu viðurkenningunni Grænfánanum sem veitt er fyrir umhverfisstarf og stefnu skólans í umhverfismálum. Þurfa skólarnir að hafa stigið sjö skilgreind skref í umhverfismálum til að geta sótt um Grænfánann sem er alla jafna veittur til tveggja ára í senn. Sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi.

Samningsaðilar hafa stefnt að undirritun slíks samnings um nokkurt skeið en þess má geta að langtímasamningur við Grænfánaverkefnið er meðal tillagna í þingsályktunartillögu um eflingu græns hagkerfis á Íslandi sem nú liggur fyrir Alþingi.

Hátíðarhöld hjá krökkum á Álftanesi

Fyrr um morguninn mun umhverfisráðherra afhenda tveimur skólum á Álftanesi Grænfána, annars vegar Náttúruleikskólanum Krakkakoti sem dregur Grænfánann að húni í þriðja sinn og hins vegar Álftanesskóla sem fær hann afhentan í fjórða sinn á morgun. Því munu um 550  krakkar á Álftanesi hafa sérstaka ástæðu til að fagna árangri sínum í umhverfismálum á fullveldisdegi Íslendinga og verða skólarnir tveir með sameiginlega hátíðardagskrá af því tilefni.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta