Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi.
Með vísan til 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og til reglugerðar dags. 30. nóvember 2011, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á smurostum frá Noregi og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 31. desember 2012.
Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollur | Magntollur | |
Úr tollskrárnr.: | kg | % | kr./kg | ||
0406.3000 | Smurostur | 01.01.-31.12.12 | 13.000 | 0 | 0 |
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal hlutkesti ráða úthlutun tollkvóta vörunnar. Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 509/2004.
Skriflegar umsóknir skulu berast til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 15:00 föstudaginn 9. desember 2011.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,
2. desember 2011.