Ungmennaráð Samfés hittir mennta- og menningarmálaráðherra
Ungmennaráð Samfés, samtök félagsmiðstöðva á Íslandi, hélt árlegan fund sinn í mennta- og menningarmálaráðuneyti föstudaginn 2. desember og tók Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra þátt í hluta fundarins og ræddi við unga fólkið. Ungmennaráð kynnti starfsemi sína fyrir ráðherra og starfsmönnum ráðuneytisins og sögðu m.a. frá verkefninu Kompás og þeim námskeiðum sem það stóð fyrir síðasta vetur um land allt. Sigurvegari söngkeppni Samfés, Teitur Gissurarson frá félagsmiðstöðinni Hólmseli og meðlimur ungmennaráðs, söng fyrir fundarmenn jólalag við góðar undirtektir. Ungmennaráð gafst svo færi á að ræða við ráðherra og starfsmenn ráðuneytisins um ýmis málefni. Að þessu loknu hélt ungmennaráð fund sinn.