Eric Kaiser framkvæmdastjóri Aquanor í Boston
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tók í dag á móti Eric Kaiser framkvæmdastjóra Aquanor marketing í Boston. Fyrirtækið er leiðandi í sölu og markaðssetningu á íslenskri eldisbleikju á Bandaríkjamarkaði. Á fundinum var m.a. rætt um markaðshorfur vegna vaxandi framleiðslu á eldisbleikju á Íslandi. Fram kom að söluhorfur eru góðar en aukið framboð á eldislaxi sem óbeint keppir við bleikjuna kann þó að hafa áhrif.
Á myndinni eru f.v. Ingimar Jóhannsson sérfræðingur í ráðuneytinu, Eric Kaiser og Jón Bjarnason.