Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum vegna tímabilið janúar – júní 2012
Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum vegna tímabilið janúar – júní 2012
Föstudaginn 16. desember sl. rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2012.
Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 2.700 stk. á meðalverðinu 24 kr./stk. Hæsta boð var 140 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.200 stk. á meðalverðinu 29 kr./stk.
Tvö tilboð bárust um innflutning á öðrum pottaplöntum, (0602.9093) samtals 3.500 stk. á meðalverðinu 19 kr./stk. Hæsta boð var 140 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 3.000 stk. á meðalverðinu 22 kr./stk.
Ein umsókn barst um innflutning á rósum (0603.1100) samtals 2.000 stk., sem er sama magn og í boði var. Úthlutað var án útboðs.
Tvö tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 9.300 stk., á meðalverðinu 7 kr./stk. Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 7 kr./stk.
Tvær umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 70.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 166.250 stk. Úthlutað var án útboðs.
Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:
Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2012
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
500 | Gróðurvörur ehf |
1.700 | Samasem ehf |
Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2012
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
500 | Gróðurvörur ehf |
2.500 | Samasem ehf |
Rósir janúar – júní 2012
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
2.000 | Samasem ehf |
Tryggðablóm janúar – júní 2012
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
300 | Gróðurvörur ehf |
8.700 | Samasem ehf |
(Annars) afskorin blóm janúar – júní 2012
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
10.000 | Gróðurvörur ehf |
60.000 | Samasem ehf |
Reykjavík, 22. desember 2011
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið