Reglugerð um veiðar á Norðuríshafsþorski
Nr. 68/2011
Reglugerð um veiðar á Norðuríshafsþorski
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur gefið út reglugerð um veiðar á Norðuríshafsþorski á árinu 2012. Reglugerðin byggir á samningi Íslands, Noregs og Rússlands frá 15. maí 1999.
Íslensk skip fá leyfi til 6.835 tonna veiði innan norskrar lögsögu norðan við 62°00‘N og utan 12 sjómílna frá grunnlínu. Heimilt er að hafa allt að 30% meðafla í öðrum tegundum samkvæmt reglum sem kveðið er nánar á um í reglugerð.
Í efnahagslögsögu Rússlands utan 12 sjómílna fá íslensk skip með sama hætti 4272 tonna úthlutun og einnig hér gilda sérreglur um meðafla sem getur verið allt að 20% í ýsu og 10% í öðrum tegundum.
Heimildum þessum er úthlutað samkvæmt aflahlutdeild en í báðum tilvikum kemur til frádráttar 1,33% skerðing samkvæmt 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006.
Þessu til viðbótar hafa íslensk skip heimildir til veiða á 2563 tonnum af þorski í rússneskri lögsögu, enda komi sérstakt gjald fyrir. Við þær gilda sömu reglur um meðafla, hann má vera allt að 20% af ýsu og 10% í öðrum tegundum.