Hoppa yfir valmynd
13. janúar 2012 Matvælaráðuneytið

Erlendir ferðamenn aldrei fleiri

Mynd frá Vatnajökli
Mynd frá Vatnajökli

Heildarfjöldi erlendra ferðamanna árið 2011 var rúmlega 565 þúsund og er um
að ræða 15,8% aukningu frá 2010 en þá voru erlendir ferðamenn tæplega 489
þúsund talsins. Hafa ferðamenn aldrei verið fleiri á einu ári. 

Ferðamálastofa tekur saman tölur um fjölda erlendra ferðamanna og í þeim
kemur fram að langflestir erlendu ferðamannanna eða 95,6% fóru um
Keflavíkurflugvöll, 2,2% komu með Norrænu um Seyðisfjörð og 2,2% fóru um
Reykjavíkur-, Akureyrar- eða Egilsstaðaflugvöll. Vert er að taka fram að
tölur fyrir aðra staði en Keflavíkurflugvöll byggja ekki á eiginlegum
talningum heldur mati út frá sölutölum og farþegatölu.

Þar fyrir utan eru farþegar með skemmtiferðaskipum en tæplega 63 þúsund
farþegar komu til Reykjavíkur með 67 skipum árið 2011, 10,6% færri en á árinu
2010 þegar þeir voru um 70 þúsund talsins. Um 95% skemmtiferðaskipa til
landsins hafa viðkomu í Reykjavík. 

Fjöldamet voru slegin í öllum mánuðum ársins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar nema
mars en þá kom álíka fjöldi og á árinu 2010. Framboð á flugsætum hefur aldrei
verið meira en á árinu 2011 og sú gríðarlega mikla umfjöllun sem landið hefur
fengið á erlendum vettvangi á undanförnum misserum virðist hafa skilað sér á
jákvæðan hátt fyrir íslenska ferðaþjónustu. 

Brottfarir erlendra ferðamanna um Leifsstöð...








Nánar á heimasíðu Ferðamálastofu



 



 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta