Trúnaðarbréfsafhending í Bandaríkjunum
Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra, afhenti 18. janúar 2012 Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Bandaríkjunum.
Forsetinn talaði við þetta tækifæri um áratuga langa vináttu ríkjanna, traust viðskipta- og stjórnmálasamband, og lagði einnig sérstaka áherslu á sameiginlega hagsmuni ríkjanna á norðurslóðum.