Stóra (jákvæða) saltmálið Fisksalt endurnýtt sem hálkuvarnarsalt!
Þegar bæjaryfirvöld í Grindavík gerðu athugasemdir við að fisksalti sem búið var að nota var sturtað í sjóinn þá voru góð ráð dýr. Eftir töluverð heilabrot fannst afbragðs gott ráð sem byggir á því að endurnota saltið til hálkuvarna og slá þannig tvær flugur í einu höggi; leysa upphaflega vandamálið varðandi förgun og auk heldur að skapa umtalsverðar tekjur í kassann!
Fyrirtækið Haustak í Grindavík hreinsar yfir 3.000 tonn af fisksalti sem gegnt hefur hlutverki sínu og selur sem hálkuvarnarsalt og efni til rykbindingar. Tilraunir og þróun vegna þessarar endurvinnslu hafa staðið í tvö ár og smiðaðar hafa verið þar til gerðar vélar til að hreinsa alla fiskbita úr saltinu.
Ábatinn af þessu verkefni er margþættur. Auk þess að skapa atvinnu þá fylgir því umtalsverður gjaldeyrissparnaður að endurnýta fisksaltið sem annars hefði verið fargað. Þá fær Vegagerðin úrvals hálkuvarnarsalt og rykbindingarefni á hagstæðara verði en ella.
Haustak er í eigu útgerðarfélaganna Vísis og Þorbjarnar í Grindavík. Auk salthreinsunarinnar vinnur fyrirtækið m.a. að því að þurrka þorskhausa.
Endurnýting fisksaltsins er eitt af þeim 16 verkefnum sem fengu styrk úr vaxtarsamningi Suðurnesja í desember.