Vaxtarsamningur Eyjafjarðar endurnýjaður með breyttum formerkjum til næstu tveggja ára
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar (AFE) og iðnaðarráðuneytið undirrituðu í dag samning um Vaxtarsamning Eyjafjarðar sem gildir fyrir árin 2012 og 2013. Til samningsins er varið 75 milljónum króna á samningstímanum úr ríkissjóði. Enginn Vaxtarsamningur tók gildi fyrir árið 2011, en með nýjum samningi verður ætluðum fjármunum þess árs varið til uppbyggingar á svæðinu og leggst fjárhæðin við framlög ráðuneytisins 2012 og 2013. Þannig verða 37,5 milljónir króna til úthlutunar á hvoru ári. Markmið samningsins er að efla nýsköpun á starfssvæði AFE, þétta innviði atvinnulífsins á svæðinu og auka hagvöxt með virku samstarfi fyrirtækja svæðisins, háskóla, sveitarfélaga og ríkisins.
Með samningnum verður Vaxtarsamningur Eyjafjarðar formlega eitt af stærstu verkefnum Atvinnuþróunarfélagsins. Allar atvinnugreinar og öll verkefni munu eiga jafna möguleika til að sækja um fjármuni úr samningnum, að uppfylltum skilyrðum hans og úthlutunarreglum. Þannig eru m.a. sett skilyrði um samstarf fyrirtækja í verkefnum og að aðilar að hverju verkefni leggi fram jafn háa upphæð í verkefni og sótt er um úr Vaxtarsamningnum.
„Nýi Vaxtarsamningurinn er einfaldari og skilvirkari en fyrri Vaxtarsamningar og er markmiðið að fjármagnið nýtist enn betur í verkefnin sjálf. Skilyrði sem sett eru fyrir úthlutunum eru þess eðlis að þau eiga að hvetja aðila til samstarfs í atvinnusköpunarverkefnum. Hvatinn sem verið hefur til aukins samstarfs í atvinnulífinu á svæðinu mun því halda áfram með nýja samningnum,” segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. „Vaxtarsamningur Eyjafjarðar hefur skilað mörgum afar góðum verkefnum á síðustu árum sem ýmist hafa þegar komist á legg eða eru enn í mótun. Það eru spennandi verkefni í gerjun á svæðinu og margir möguleikar sem opnast hafa í ferðaþjónustu og útflutningi, ekki síst vegna endurbóta á Akureyrarflugvelli, sem hefur gríðarlega þýðingu fyrir svæðið”.
Gert er ráð fyrir einu stöðugildi hjá AFE vegna Vaxtarsamnings Eyjafjarðar og verður auglýst reglubundið eftir umsóknum um stuðning samningsins við atvinnuverkefni á svæðinu, sem er frá Fjallabyggð að Grýtubakkahreppi.
Nánari upplýsingar veitir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson í síma 859 3316