Nýjar rannsóknir á Drekasvæðinu sýna ummerki um olíu frá Júratímabilinu á hafsbotni
Olíuleitarfélögin TGS og Volcanic Basin Petroleum Research (VBPR) söfnuðu sýnum úr 1000 m háum hamri á hafsbotni á Drekasvæðinu í september sl. í samræmi við leitarleyfi sem Orkustofnun veitti TGS í sama mánuði. Meira en 200 kg af grjóti og seti náðust á tólf sýnatökustöðum.
Nýju sýnin gefa spennandi innsýn í olíujarðfræði Drekasvæðisins. Setbergi frá ýmsum tímum miðlífsaldar (fyrir 250 til 65 milljón árum síðan) var safnað. Engin sýni eldri en 50 milljón ára höfðu verið tekin á svæðinu með borun eða öðrum aðferðum fyrir síðasta sumar og koma til viðbótar við niðurstöður úr rannsókn norsku Olíustofnunarinnar en önnur jarðlög fundust í þessari rannsókn. Ummerki um olíu úr móðurbergi frá Júratímabilinu (fyrir 200 til 150 milljón árum síðan) fundust sem staðfestir að það sé virkt kolvetniskerfi á Drekasvæðinu.
Ítarleg skýrsla um rannsóknirnar er fáanleg frá TGS og VBPR gegn gjaldi. Skýrslan hefur þýðingu fyrir yfirstandandi útboð sérleyfa á Drekasvæðinu, en nú er rétt rúmur mánuður til stefnu þannig að þessar upplýsingar koma seint fram í ferlinu. Niðurstöðurnar koma einnig að gagni við olíuleit á djúphafsbotni á evrópska og grænlenska landgrunninu.