Hoppa yfir valmynd
1. mars 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkur til Noregsfarar

Stjórn sjóðsins „Þjóðhátíðargjöf Norðmanna“ auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna Noregsferða á árinu 2012.

Stjórn sjóðsins „Þjóðhátíðargjöf Norðmanna“ auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna Noregsferða á árinu 2012.
Samkvæmt skipulagsskrá fyrir sjóðinn er tilgangur hans: ,,að auðvelda Íslendingum að ferðast til Noregs. Í þessu skyni skal veita viðurkenndum félögum, samtökum og skipulögðum hópum ferðastyrki til Noregs í því skyni að efla samskipti þjóðanna, t.d. með þátttöku í mótum, ráðstefnum eða kynnisferðum, sem efnt er til á tvíhliða grundvelli”.

Ekki eru veittir styrkir til þátttöku í fjölþjóðlegum mótum, þ.m.t. samnorrænum sem haldin eru til skiptis á Norðurlöndum, og ekki er úthlutað ferðastyrkjum til einstaklinga eða þeirra sem eru styrkhæfir af öðrum aðilum.
Í skipulagsskránni segir einnig, að áhersla skuli lögð á að veita styrki, sem renna til beins ferðakostnaðar, en umsækjendur beri sjálfir dvalarkostnað í Noregi.

  • Hér með er auglýst eftir umsóknum frá aðilum sem uppfylla framangreind skilyrði. Umsóknum skal skila á eyðublaði sem er á vef mennta- og ráðuneytisins.
  •  Einnig má nálgast eyðublaðið hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, sími 545-9500.
  • Árið 2012 hefur sjóðurinn 500 þús. kr. til úthlutunar.
  • Senda skal umsóknir til [email protected] eða mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, eigi síðar en 2. apríl 2012.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta